Bíó og sjónvarp

Þessi verða í nýju Stjörnustríðsmyndinni

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Þessi verða með í sjöundu Stjörnustríðsmyndinni.
Þessi verða með í sjöundu Stjörnustríðsmyndinni.
Framleiðendur sjöundu Stjörnustríðsmyndarinnar hafa loksins sent frá sér tilkynningu um það hverjir fara með hlutverk í myndinni.

Mark Hamill, sem fór með hlutverk Loga geimgengils í gömlu myndunum, verður einnig með í þeirri nýjustu.
Það eru leikararnir John Boyega, Daisy Ridley, Adam Driver, Oscar Isaac, Andy Serkis, Domhnall Gleeson og Max von Sydow sem mæta nýjir til leiks en einnig verða gamlir félagar á sínum stað.

Þau Harrison Ford, Carrie Fisher, Mark Hamill, Anthony Daniels, Peter Mayhew og Kenny Baker fara öll með hlutverk í myndinni, en þau léku í fyrstu myndunum þremur sem komu út á árunum 1977 til 1983.

„Það er bæði spennandi og súrrealískt að sjá þessa ástsælu gömlu leikara vinna með þessum frábæru nýju leikurum,“ segir J.J. Abrams, leikstjóri myndarinnar, en tökur á henni hefjast á næstu vikum.

Star Wars: Episode VII verður frumsýnd jólin 2015.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.