Bíó og sjónvarp

Ofbeldisfull sjónvarpsstjarna rekin úr Scandal

Kerry Washington og Columbus Short
Kerry Washington og Columbus Short Vísir/Getty
Columbus Short, einn leikara í þáttaröðinni vinsælu Scandal, verður ekki meðal leikara í fjórðu þáttaröðinni. Þetta tilkynnti hann í dag.

„Allt tekur einhverntíma enda og því miður er sú stund runnin upp að Harrison Wright þarf að yfirgefa svæðið,“ segir meðal annars í tilkynningunni, en Harrison Wright er nafn persónu hans í þáttunum.

„Ég óska öllum samstarfsfélögum mínum öllu hins besta, þau hafa verið mér eins og önnur fjölskylda á þessum tíma. Fyrir það mun ég alltaf vera þakklátur.“

Short hefur verið handtekinn oftar en einu sinni á árinu, meðal annars fyrir slagsmál á bar í mars og fyrir hávaðasamt rifrildi við eiginkonu sína þar sem hann hótaði henni lífláti.

Short hefur áður verið sakaður um að ganga í skrokk á fólki. Árið 2010 var hann sakaður um að hafa kjálkabrotið mann að nafni Jason Hill á körfuboltaleik, en Hill fékk nálgunarbann á Short í kjölfarið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.