Sport

Federer eignaðist aftur tvíbura

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mirka hvetur hér eiginmann sinn áfram.
Mirka hvetur hér eiginmann sinn áfram. Vísir/Getty
Tenniskappinn Roger Federer er orðinn fjögurra barna faðir eftir að kona hans, Mirka, eignaðist tvíbura í annað sinn á aðeins fimm árum.

Federer tilkynnti á Twitter-síðu sinni í gærkvöldi að bræðurnir Leo og Lenny væru komnir í heiminn. Þeir eiga systurnar Myla Rose og Charlene Riva sem fæddust í júlí árið 2009.

Sjálfsagt er afar fáheyrt að hjón eignist tvívegis tvíbura með svo skömmu millibili en veðbankar ytra eru þegar byrjaðir að taka við veðmálum þess efnis að systurnar vinni einn daginn Wimbledon-mótið í tennis - í tvíliðaleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×