Leikjavísir

„Ættum að ná yfir 20 milljónum notenda í þessari viku“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þorsteinn Baldur í viðtali á CNBC
Þorsteinn Baldur í viðtali á CNBC
„Við gáfum út leikinn fyrir sex mánuðum og ættum að ná yfir 20 milljónum notenda í þessari viku,“ segir Þorsteinn Baldur Friðriksson, stofnandi og forstjóri Plain Vanilla, í viðtalsþætti á bandarísku sjónvarpsstöðinni CNBC.

Plain Vanilla stendur á bak við QuizUp sem er sá iPhone-farsímaleikur sem hefur vaxið hraðast í sögunni. QuizUp kom síðan út fyrir Android stýrikerfið fyrr á þessu ári.

„Þetta er bara eitt af þessum ævintýrum. Við höfðum verið að vinna að QuizUp í um tvö ár áður en við gáfum leikinn út. Við höfðum alltaf trú á því að þetta gæti orðið nokkuð stór leikur en viðtökurnar hafa verð mun betri en okkur gat dreymt um.“

Áhættufjárfestingafyrirtækið stórtæka Sequoia Capital keypti sig inn í fyrirtækið fyrir hátt í tvær milljónir dala áður en QuizUp var hleypt af stokkunum.

Þorsteinn talar töluvert um samstarf Plain Vanilla við stórfyrirtæki á borð við Coca Cola og Google. 

Þorsteinn kallar sig Thor vestanhafs.
„Þar sem leikurinn er aðeins fyrir farsíma í dag eru auglýsingamöguleikarnir ekki nægilega spennandi að okkar mati. Okkur hugnast illa þessir auglýsingaborðar sem birtast á skjánum í símanum þínum. Því höfum við verið að skoða aðra möguleiki með fyrirtækjum eins og Coca Cola og Google.“

Viðtalið við Þorstein má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Lýsið helltist yfir mig alla

Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir starfar hjá Plain Vanilla sem Photo Editor og elskar að Stykkishólm.

Þorsteinn einn sá mest skapandi í heiminum

Þor­steinn B. Friðriks­son, for­stjóri Plain Vanilla, er í fertugasti sæti yfir mest skapandi einstaklinginn í viðskiptalífinu árið 2014 samkvæmt lista frumkvöðlafjölmiðilsins Fast Company.








×