Lífið

Robin Thicke semur lag um fyrrverandi eiginkonu sína

Hjónakornin fyrrverandi.
Hjónakornin fyrrverandi.
Robin Thicke er búinn að semja lag með það í huga að vinna sína fyrrverandi, Paula Patton, til baka. Lagið ber heitið „Get Her Back“ en í textanum kemur meðal annars fram að hann vilji fá annað tækifæri.

Samkvæmt slúðurmiðlunum ytra ætlar Thicke að frumflytja lagið á Billboard-tónlistarverðlaununum sem fara fram á mánudagskvöldið.

Thicke og Patton hófu samband sitt á unglingsárunum og giftu sig fyrir átta árum en í febrúar slitnaði upp úr sambandinu. Þá Thicke var meðal annars sakaður um að hafa haldið framhjá eiginkonu sinni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.