Heilsa

Heilsan og hundarnir

Rikka skrifar
Hamingjusamur hundur
Mynd/GettyImages
Hundar hafa fylgt okkur mannfólkinu frá örófi alda og telja vísindamenn líkur á því að við værum hreinlega ekki til án þeirra hjálpar. Nýjar rannsóknir sýna svo fram á að regluleg nærvera við hund styrki heilsuna.

Breska sjónvarpsstöðin BBC sýndi fyrir stuttu frábæra heimildarmynd um uppruna hundins og tengingu hans við manninn. Í myndinni er rætt bæði við hundaeigendur og þá sem standa á bakvið rannsókn um tengingu hunda og góðrar heilsu mannsins. Þetta er heimildarmynd sem að þeir sem að elska hunda eða eru að hugsa um að fá sér hund ættu ekki að láta framhjá sér fara.


Heimildarmyndina má finna hér.








×