Tónlist

Nýtt lag Nicki Minaj gerir allt vitlaust á Twitter

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tónlistarkonan Nicki Minaj er búin að setja nýtt lag á netið. Lagið heitir Pills N Potions og er af væntanlegri plötu söngkonunnar, The Pink Print.

Lagið er kraftmikil ástarballaða sem var pródúseruð af Dr. Luke en Ester Dean samdi lagið með henni eins og slagarann Super Bass.

Ef marka má Twitter hittir lagið beint í mark og kassmerkið #PillsNPotions hefur verið að trenda mikið á samfélagsmiðlinum í dag eins og sjá má í Twitter-flæðinu hér fyrir neðan.

Einnig er hægt að hlusta á lagið hér fyrir neðan. Dæmi nú hver fyrir sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.