Heilsa

Er sykurpúki í þér?

Rikka skrifar
Er sykurpúki í þér?
Er sykurpúki í þér? Mynd/Getty
Hver kannast ekki við þessa óstjórnlegu löngun í eitthvað sætt? Stundum getur maður hreinlega ekki haldið aftur af sér og endar á því að raða upp í sig ósmekklega miklu sælgæti. Stundarsælan hríslast um líkamann og maður er sáttur um sinn en stuttu síðar mætir samviskubitið og í kjölfarið sykurfallið sem kallar á meiri sykur og þar með er maður fallinn í vítahring sykurneyslunnar. Sem betur fer eru þó til nokkur skotheld ráð sem beina þér í rétta átt að sykurminna líferni. 

Borðaðu hollan og staðgóðan morgunmat

Byrjaðu daginn á því að fá þér prótín- og trefjaríkan morgunmat. Rannsóknir sýna að þeir sem að sleppa morgunmatnum eru 5 sinnum líklegri til að vera þéttari í holdum en þeir sem að fá sér staðgóðan morgunverð. 



Ekki bjóða sykurpúkanum í heimsókn


Borðaðu eitthvað hollt og gott reglulega. Vertu til dæmis með ávöxt eða hnetublöndu tiltæka ef að vottur af hungri sækir á. Sykurpúkinn er fljótur að mæta á svæðið ef að blóðsykurinn fellur.

Góða nótt og sofðu rótt

Hugaðu að góðum svefnvenjum. Þreyttur og svefnvana líkami öskrar á sykur til að halda sér gangandi á annars flokks orku. Ekki liggja fyrir framan sjónvarpið og leka svo þaðan og inn í rúm. Farðu í létta gönguferð fyrir svefninn, andaðu að þér fersku lofti og lestu góða bók áður en þú svífur á vit ævintýranna í draumaheiminum.

Segðu já!

Byrjaðu hvern morgun á því að hugsa jákvætt til dagsverkanna og sjálfs þíns. Þakkaðu fyrir lífið, fjölskylduna og heilsuna. Rannsóknir sýna að þeir sem að eru meðvitaðri um andlega heilsu neyta hollari fæðu.








×