Gjaldeyrisviðskipti tryggingafélaga brjóti gegn lögum Þorbjörn Þórðarson skrifar 17. júní 2014 13:21 Seðlabankinn telur að gjaldeyrisviðskipti þriggja íslenskra tryggingamiðlara sem selja þjónustu erlendra tryggingafélaga hér á landi brjóti gegn lögum um gjaldeyrismál. Vísir/Pjetur
Fjármagnsflutningar á fjórða tug þúsunda Íslendinga í tengslum við sparnað hjá erlendum tryggingafélögum verða stöðvaðir og verður þeim gert skylt að spara í íslenskum krónum á Íslandi í staðinn. Seðlabankinn telur að gjaldeyrisviðskipti þriggja íslenskra tryggingamiðlara sem selja þjónustu erlendra tryggingafélaga hér á landi brjóti gegn lögum um gjaldeyrismál. Félögin sem um ræðir eru Allianz á Ísland, Sparnaður og Tryggingamiðlun Íslands og hyggst Seðlabankinn stöðva gjaldeyrisviðskipti og fjármagnshreyfingar í erlendum gjaldeyri vegna iðgjaldagreiðslna á grundvelli samninga um viðbótartryggingavernd, sparnað, söfnunartryggingar og eingreiðslulíftryggingar að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Í frétt sem Seðlabankinn sendi frá sér á ellefta tímanum í morgun kemur fram að bankinn hafi haft til skoðunar um nokkra hríð hvort samningar erlendra tryggingafélaga sem boðnir hafa verið til sölu hér á landi séu í samræmi við lög og reglur um gjaldeyrismál. Þegar gjaldeyrishöftunum var komið á með breytingu á lögum um um gjaldeyrismál í lok nóvember 2008 voru ekki settar takmarkanir á vöru og þjónustuviðskipti en hins vegar lagt bann við greiðslum vegna samninga sem fela í sér söfnun eða sparnað erlendis. Í frétt Seðlabankans kemur fram að mörkin þarna á milli séu hins vegar í raun ekki alltaf skýr, t.d. þegar sami samningur felur í sér bæði vátryggingar og sparnað. Það ásamt því að Seðlabankinn taldi nauðsynlegt að skilningur annarra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á þessum mörkum væri sá sami og bankans, skýrir meðal annars af hverju bankinn greip ekki til ráðstafana fyrr. Talið er að rúmlega þrjátíu þúsund einstaklingar séu með slíka samninga hér á landi. Til þess að gæta að hagsmunum þessara einstaklinga verður þeim gert kleiftað viðhalda samningssambandi sínu við erlendu tryggingafélögin í stað þess að stöðva greiðslur alveg. Í því felst að samningarnir verða í íslenskum krónum og söfnun sparnaðar mun hér eftir eiga sér stað á Íslandi. Verður íslenskum umboðsaðilum þessara tryggingafélaga veitt fjögurra mánaða aðlögunartímabil til að ná þessu markmiði. Verulega mun draga úr útstreymi fjármagns frá landinu samhliða því að gjaldeyrisviðskipti erlendu tryggingafélaganna verða stöðvuð. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins áætlar Seðlabankinn að frá setningu fjármagnshafta í lok nóvember 2008 til maí 2014 þá hafi heildarútflæði vegna sparnaðarleiða tryggingafélaganna numið tæplega 40 milljörðum króna.
Mest lesið Átta sagt upp hjá Arion banka Viðskipti innlent „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Viðskipti innlent Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Viðskipti innlent Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Viðskipti innlent Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Viðskipti innlent Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Viðskipti innlent Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Viðskipti innlent Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Viðskipti innlent Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Spá enn einum fundinum án breytingar Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Munu fljúga til Nashville næsta sumar Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Átta sagt upp hjá Arion banka Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Enn eitt félag Quangs gjaldþrota Svekktur en ekki hissa á færri íbúðum í byggingu Færri íbúðir í byggingu en fyrir ári Gengi Icelandair flaug upp á við Vill laða að lágverðsverslun á Krókinn Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025 Fura Ösp nýr formaður stjórnar hjá Brandenburg Tekur við stöðu forstöðumanns þjónustu hjá Reitum Sjá meira