Tónlist

Syngur Heroes gegn einelti

Janelle Monae
Janelle Monae Vísir/Getty
Janelle Monae söng eigin útgáfu af klassísku lagi Davids Bowie, Heroes, fyrir nýja plötu Pepsi, The Beats of The Beautiful Game sem kom út í gær og fjallar um fótbolta í aðdraganda HM. Myndböndin og lögin vekja einnig athygli á öðrum og stærri málaflokkum, til dæmis átaki gegn einelti eins og sjá má í myndbandinu sem fylgir fréttinni.

Lögin eru allt í allt ellefu lög eftir fræga tónlistarmenn í Bandaríkjunum, á borð við Kelly Rowland, Santigold og Ritu Ora. Hverju lagi fylgir svo myndband, sem hvert hefur sinn leikstjóra - en leikstjórar á borð við Spike Lee og Idris Elba taka þátt í verkefninu.

The Young Astronauts leikstýra myndbandi við lag Monae, sem má sjá hér að neðan.

En af hverju ákvað Monae að syngja lag Bowies?

,,Ég elska hann. Mér finnst hann hafa gert ótrúlega hluti á ferlinum og þetta lag hefur ekki einungis verið mér innblástur, heldur mörgum öðrum líka. Mér fannst þetta fullkomið lag."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.