Heilsa

Kenndi jóga í Hvíta húsinu

Rikka skrifar
Peter Sterios
Peter Sterios Mynd/Sterios
Helgina 27-29 júní næstkomandi mun Peter Sterios og Tristan Gribbin jógakennarar halda helgarnámskeið í jóga og hugleiðslu á Sólheimum í Grímsnesi. Lögð verður áhersla á endurnýjun og innri vöxt og því tilvalið fyrir þá sem vilja næra sálina og styrkja eigið sjálf að skrá sig á námskeiðið. Námskeiðið er sem fyrr segir haldið á Sólheimum sem er hlaðið jákvæðri orku og einstakri náttúrufegurð.

Peter Sterios, annar kennaranna, er þekktur jógakennari í Kaliforníu og yfir þrjátíu ára reynslu og þekkingu af jóga. Hann hefur gefið út fjölda myndbanda um jóga og breitt út jógaboðskapinn um heim allann. Peter hefur tekið þátt í herferð Michelle Obama, forsetafrúar, gegn offitu barna í bandaríkjunum og kennt börnum jóga og jógaheimspeki í Hvíta húsinu.

Tristan Gribbin hugleiðslukennarMynd/Gribbin
Tristan Gribbin er fædd og uppalin í Kalifornía í Bandaríkjunum en hefur búið og starfað á Íslandi í hartnær tuttugu ár. Hún er einn magnaðasti hugleiðslukennari landsins og kennir Modern-Day Meditation® hugleiðsluaðferðina.

Sú aðferð gengur út á að upplifa frið og kærleika innra með sér með því að fara inn á við og læra að þekkja sjálfið betur. Modern-Day Meditation® er ein sterkasta hugleiðsluaðferðin til að ná því markmiði.

Allar upplýsingar og skráning á námskeiðið má finna á Facebook síðu Modern-Day Meditation®

The Journey So Far from Peter Sterios on Vimeo.








×