Heilsa

Taktu þig saman í andlitinu

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
Gerðu þinn eigin andlitsmaska
Gerðu þinn eigin andlitsmaska Mynd/getty
Snyrtivörur innihalda margar hverjar efni sem talin eru skaðleg heilsunni og það getur verið erfitt að finna vörur sem eru án allra eiturefna og ofnæmisvalda. Hér koma tvær uppskriftir fyrir þá sem vilja búa til sína eigin andlitsmaska sem hægt er að skella í heima úr lífrænum hráefnum úr eldhúsinu  

Túrmerik andlitsmaski

Túrmerik er talið hafa bólgueyðandi áhrif og  þessi maski er tilvalinn fyrir þreytta húð.

1 matskeið túrmerikduft

1 matskeið lífrænt hunang

½ teskeið vatn

Blandið hráefnunum saman þangað til að þetta verður að þykku mauki. Berið á andlit með fingrunum og bíðið í 10 mínútur. Hreinsið af með volgu vatni og bómull.  Varist að maskinn berist í augu og gætið einnig að því að túrmerik getur skilið eftir bletti á fötum. 

Lárperumaskimynd/Getty
Lárperu andlitsmaski

Næringarríkur andlitsmaski fyrir allar húðtegundir og þá sérstaklega þurra húð. Húðin verður mjúk og geislandi á eftir.

1 lárpera, afhýdd og steinhreinsuð

1 matskeið af góðri lífrænni ólífuolíu  

1 matskeið af lífrænni jojoba olíu

Blandið hráefnunum saman í skál eða blandara þangað til að áferðin er orðin jöfn og mjúk.

Nuddið inn í húðina og bíðið í 15 mínútur. Einnig er hægt að nota þennan í hárið. Gott er að fara í sturtu á eftir og þrífa af andliti og úr hári. 








×