Golf

Oosthuizen högglengstur | Met Nicklaus stendur enn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Louis Oosthuizen getur slegið boltann yfir 300 metra.
Louis Oosthuizen getur slegið boltann yfir 300 metra. vísir/getty
PGA-meistaramótið í golfi hefst á morgun, en í gær var keppnin um lengsta teighöggið haldin á tíunda teig Valhalla-vallarins þar sem mótið fer fram.

Þetta er í fyrsta skipti síðan 1984 sem keppnin um lengsta teighöggið er haldin fyrir PGA-meistaramótið og virtust allir sem tóku þátt hafa gaman að, allir nema einn.

Bubba Watson lét eins og kjáni og sló boltann með þrjú járni. Eðlilega átti hann engan möguleika á sigri þó högglangur sé. Sjónvarpsmenn Golf Channel voru ekkert sérstaklega ánægðir með Bubba eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan.

Suður-Afríkumaðurinn Louis Oosthuizen vann keppnina með höggi upp á 311 metra, en 312 metra högg goðsagnarinnar Jack Nicklaus frá árinu 1963 stendur enn. Fimmtíu og einu ári síðar hefur það ekki verið bætt.

Ástralinn Jason Day varð annar, en hann sló einum metra styttra en Oosthuizen sem fékk 25.000 dali í verðlaun og gyllta peningaklemmu. Nicklaus notar sína klemmu frá 1963 enn þann dag í dag.

„Þetta var frábær viðbót við mótið. Við höfðum allir virkilega gaman að. Vonandi heldur þetta áfram,“ sagði PhilMickelson kampakátur eftir keppnina.

PGA-meistaramótið hefst á morgun á Golfstöðinni og verða allir fjórir keppnisdagarnir í beinni útsendingu. Fáðu þér áskrift hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×