Íslenski boltinn

Siggi Raggi: Sýndum að við getum þetta án Eiðs

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Sigurður Ragnar Eyjólfsson.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson. vísir/stefán
Það varð ekkert úr því að Eiður Aron Sigurbjörnssonspilaði kveðjuleik fyrir ÍBV á móti FH í dag því hann sat allan tímann á varamannabekknum.

Örebro er búið að kalla Eið Aron aftur úr láni og mun lána hann til norska úrvalsdeildarliðsins Sandnes Ulf þar sem fyrir eru Hannes Þ. Sigurðsson og Hannes Þór Halldórsson.

Án fyrirliðans í hjarta varnarinnar náðu Eyjamenn stigi gegn toppliði ÍBV og fengu ekki á sig nema eitt mark.

„Það er auðvitað slæmt fyrir okkur, hann er frábær leikmaður og mikilvægur í okkar hóp,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari ÍBV eftir leikinn.

„En við spiluðum án hans í dag og liðið stóð sig mjög vel. Það ætti að sýna okkur að við getum þetta alveg,“ sagði Sigurður Ragnar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×