Heilsa

10 leiðir til að minnka mittismálið

Rikka skrifar
mynd/getty
Þessi 10 ráð er upplagt að hafa í huga ef að þig langar að minnka mittismálið eða taka skref í áttina að heilbrigðara líferni.

Skrifaðu það niður


Rannsóknir sýna að þeir sem að halda sérstaka matardagbók vanda sig betur að því hvað þeir setja ofan í sig. Notaðu gamla góða pennann og blaðið, það virðist ná frekari árangri en að skrifa það niður í símann.



Hækkaðu í botn


Hlustaðu á tónlist með hröðum takti þegar þú hreyfir þig. Það er víst þannig að lög sem að hafa 180 slög á mínútu eins og t.d “Hey Ya” með Outkast virka fyrir þig eins og orkuskot.



Hugleiddu


Við eigum það stundum til að borða þegar okkur líður illa eða þegar við erum kvíðin. Hugleiðsla hefur jákvæð áhrif á þetta ástand og þar af leiðandi minnka þessar sveiflur og við verðum meðvitaðari um það hvernig okkur líður.



Sofðu rótt


Komdu reglu á svefninn. Óreglulegur svefn setur matarvenjur og matarlyst úr jafnvægi. Það er segin saga að við sækjumst í feitari og óhollari mat þegar við erum þreytt. 


Staldraðu við

Líkaminn þarf smá tíma til að átta sig á því hvort að þú þurfir að borða meira eða hvort að nóg sé komið. Talið er að það taki líkamann 10-20 mínútur að átta sig á stöðunni. Staldraðu því aðeins við áður en að þú færð þér aftur á diskinn eða veður í eftirréttinn.


Borðaðu áður en að þú ferð út að borða


Fáðu þér smá hollt snakk áður en að þú ferð út að borða með vinunum, til dæmis epli eða handfylli af hnetum. Þegar þú ferð glorhungraður út að borða þá pantarðu yfirleitt óhollasta réttinn. … nema að þú hafir þeim mun meiri sjálfsaga.

Ekki borða og horfa

Rannsóknir sýna að þeir sem að borða fyrir framan sjónvarpið velja óhollari mat og stærri skammtastærðir. Við missum einbeitinguna þegar við sökkvum inn í sjónvarpið og hættum að hugsa um það magn sem að við setjum ofan í okkur.

Troddu í þig trefjum

Trefjar hafa þau jákvæðu áhrif á líkamann að þér finnst þú vera saddari lengur auk þess sem að þær eru góðar fyrir meltinguna og lækka blóðfitu í líkamanum



Forðastu hvítu efnin

Einföld kolvetni eins og hvítt hveiti, sykur og allt sem úr þeim er búið til eru orkurík en næringasnauð á sama tíma. Við græðum því lítið á því að lifa á þeim. Veldu frekar gróft hveiti og aðrar flóknari sykursameindir sem eru næringaríkari og innihalda oft á tíðum trefjar sem hafa góð áhrif á líkamann. 



Með jákvæðnina að vopni


Allt er hægt að sigra með jákvæðnina að vopni. Hugsaðu að þú getir stjórnað matarlystinni og hrósaðu þér fyrir að velja rétta matinn.










×