Lífið

Leitað að hundi stjörnubarns

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hundur stjörnubarnsins Suri Cruise, sem heitir Honey, en er líka þekktur sem Maple, er týndur.

Samkvæmt frétt TMZ er Suri nýbúin að fá þennan kvenkyns Chihuahua-hund úr dýraathvarfi í San Fernando Valley. 

Plagg þar sem auglýst er eftir hundinum hefur verið hengt upp víðs vegar í Los Angeles og þar sést hvuttinn í bleikum kjól. Hann er sagður vera eins árs og sást síðast á Benedict Canyon- og Green Acres-svæðinu.

Suri er sem kunnugt er dóttir leikkonunnar Katie Holmes og leikarans Tom Cruise.

Katie og Suri.vísir/getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×