"Kvikindið var ógeðslegt" - myndir Ellý Ármanns skrifar 26. ágúst 2014 12:45 Jón Helgi brást rétt við þegar hann áttaði sig á því að Cesar sem verður 4 ára í október var með skógarmítil fastan í andlitinu.
Jón Helgi Sigurðsson áttaði sig á því að hundurinn hans, Cesar, sem er af kyninu American Cocker Spaniel var með óæskilegt kvikindi fast í andlitinu á sér. Um var að ræða skógarmítil sem var búinn að koma sér vel fyrir.Hélt fyrst að þetta væri varta„Ég varð fyrst var við þetta þegar hann var að kúra við hliðina á mér í morgunsárið á sunnudeginum. Ég áttaði mig ekki alveg strax á því hvað þetta var. Ég var að fikta í þessu með puttunum og leiddi hugann að því hvort þetta væri einhverskonar varta en fannst það ólíklegt þar sem þetta hafði ekki verið þarna kvöldið áður. Þá næst datt mér í hug hvort þetta væri skógarmítill en ég var búinn að skoða þetta, alveg með andlitið ofan í þessu, en sá engar lappir eða neitt sem benti til þess að þetta væri eitthvað kvikindi og Cesari virtist ekkert vera illt í þessu," úskýrir Jón.Hér má greinilega sjá skógarmítilinn sem var búinn að grafa sig inn í Cesar.Dýraspítalinn lokaður „Þar sem það var sunnudagur og ég gat ekki keyrt rakleiðis á dýraspítalann ákvað ég að taka mynd af þessu og pósta á síðu hundasamfélagsins á Facebook til að kanna hvort einhver vissi hvað þetta væri. Það var ekki lengi að koma í ljós því Facebook tilkynningarnar hlóðust inn hjá mér og hjálpsemi og ráðleggingar annarra hundaeigenda leyndu ekki á sér," segir hann. „Ég hafði svo samband við dýralækna sem sannfærðu mig um að taka þetta sjálfur strax með sérstökum pödduplokkara sem ég fékk hjá Gæludýr.is á Korputorgi. Það var ekkert mál en kvikindið var ógeðslegt og ég fékk nokkuð góðan kláða eins og maður fær þegar einhver talar um lús þegar ég náði ógeðinu úr."Plokkarinn sem Jóni var ráðlagt að nota til að ná kvikindinu.Cesar virtist ekki finna til að sögn Jóns.Félagarnir Jón Helgi og Cesar.Bólgan farin „Núna tveimur dögum seinna er bólgan farin úr við augað sem var að vísu ekki mikil." „Mig langar að hvetja fólk til að vera opið fyrir þessu kvikindi, ekki bara á hundunum sínum heldur sjálfu sér líka, því þetta er víst komið til að vera. Ég hafði heyrt af þessu í skóglendi og á þess háttar stöðum en Cesar hefur bara fengið þetta hér úti í garði á miðsvæði Reykjavíkur. „Ég ráðlegg fólki að festa kaup á þessum pödduplokkara eins og dýralæknarnir ráðlögðu mér. Ég fékk allskonar ráðleggingar á netinu eins og til dæmis að bera olíu eða smjör á pödduna því þá næði hún ekki að anda og losaði sig frá en dýralæknarnir ráðlögðu mér hinsvegar báðir að gera það ekki. Þeir vildu að ég keypti plokkarann - svo það er það sem ég vill ráðleggja öðrum," segir Jón Helgi.
Mest lesið Kaupmálar 50+: „Mér finnst uppkomin börn oft ansi frek til fjárins“ Áskorun Einhleypan: Góðmennska og húmor heillar Lífið „Mundu nafnið mitt því ég verð þekkt leikkona“ Lífið Uppgötvaði frænkur á Íslandi í ferð til Srí Lanka Lífið Tungumál berst fyrir tilvist sinni í skógum Svíþjóðar Lífið Tveir urðu að sjö: „Ég veit ekki neitt hvað ég að gera“ Lífið Þetta borðuðu Jói Fel og frú í sex mánuði Matur Greip tækifærið og nýtur Parísar í botn Lífið Uppgefin á stressinu um miðnætti Lífið Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Menning Fleiri fréttir Einhleypan: Góðmennska og húmor heillar Uppgötvaði frænkur á Íslandi í ferð til Srí Lanka „Mundu nafnið mitt því ég verð þekkt leikkona“ Krakkatían: Skólarapp, fótbolti og landafræði Þakklátur Grindvíkingum fyrir traustið Tungumál berst fyrir tilvist sinni í skógum Svíþjóðar Greip tækifærið og nýtur Parísar í botn Fréttatía vikunnar: Alþingi, tónlist og íþróttir Uppgefin á stressinu um miðnætti Edda Falak fagnar tveimur mánuðum sem móðir Hvaða stjórnmálaleiðtogi væri besti drykkjufélaginn? Myndaveisla: Skvísur landsins létu stressið líða úr sér Fjölskylda Matthew Perry tjáir sig í fyrsta skipti 400 fermetra glæsihús með lyftu í Garðabæ „Erfitt að vera kominn á stað sem ég hélt að yrði minn hinsti hvíldarstaður“ Big sexy og Jói Fel tókust á í bjórþambi Heilsuráð Önnu Eiríks fyrir haustið „Ég átti mér draum um að vinna á ruslabíl“ „Alla dreymir um að eiga geit“ Hafi liðið sem gísl í Argentínu Símon veit ekki hvort hann á að hlæja eða gráta Valdi Hugh Jackman fram yfir eiginmanninn Sunneva viðstödd fæðingu sonar Jóhönnu Skálað fyrir skarti í Silfursmára Tarsan-leikari látinn Átján ára og ólétt en lét það ekki stoppa sig Óneitanlega óhugnanlegt að horfast í augu við ljón Sýnir örin í fyrsta sinn Laufey Lín í bíó Kitlar að skella sér í stjórnmálin Sjá meira