Lífið

Gerir góða hluti í Belgíu

Ellý Ármanns skrifar
Dagný Rós Ásmundsdóttir matgæðingur með meiru hefur vakið athygli í Belgíu fyrir gómsætar uppskriftir eins og sjá má hér á vinsælli vefsíðu þar í landi sem ber heitið Njam.

Þar deilir Dagný, sem hefur verið búsett í Belgíu undanfarin 15 ár, uppskriftum sínum með Belgum sem kunna að meta það sem hún hefur fram að færa.

Hér fyrir neðan má sjá myndskeið þar sem þar sem Dagný er í aðalhlutverki fyrir auglýsingu á vinsælum belgískum skemmtiþætti sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni 2BE.

Þar er verið að auglýsa nýja þáttaröð sem hefur göngu sína 1. september næstkomandi.

Sjá auglýsinguna hér þar sem Dagný leitar að kanil en svo kemur í ljós að kameldýr var pantað fyrir hana en orðin kanill og kameldýr eru borin eins fram á flæmsku.  

FacebooksíðaDagnýar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×