Maður án typpis sigga dögg kynfræðingur skrifar 26. ágúst 2014 11:00 Skortur á typpi þarf ekki að þýða kynlífsleysi Mynd/Getty
Ég las ótrúlega áhugavert spurt og svarað um karlmann sem missti typpi sitt þegar hann var tólf ára er vinur hans (besti vinur hans enn þann dag í dag) skellti hurð á hann. Þetta átti víst að vera brandari sem misheppnaðist gersamlega. Hér má sjá ljósmyndir af honum (sko kynfærinum). Í spjallþræðinum kemur það mörgum á óvart að hann eigi kærustu og margir velta því fyrir sér hvernig honum gengur að stunda kynlíf. Hann svarar því mjög skemmtileg og segist geta fengið fullnægingu og sé sérfræðingur í að fullnægja konum, og það allt án typpis. Ef þú veist hvernig píkan virkar þá veistu einnig að hún þarf ekki typpi til fullnægingar heldur hendur og haus, eitthvað sem flestir elskhugar eru eru með. Kynlíf er svo miklu meira en samfarir typpis inn í píku og hægt er að stunda frábært kynlíf með mörgum fullnægingum án þess að hafa samfarir. Það væri gaman ef fleiri vissu þetta og hefðu þessa sýn á kynlíf, óháð kyni, kynvitund og kynhneigð. Þessi ágæti umræddi herramaður er reyndar á leið í aðgerð til að fá typpi, það svo á eftir að koma í ljós hvort það virki og þá hvernig hann meti kynlífið í kjölfarið.
Heilsa Mest lesið „Ég ætla ekki að þegja lengur“ Lífið Borðar ekkert nema kjöt, egg og smjör Lífið Chalamet syngur sem Bob Dylan í nýrri stiklu Lífið Sex þúsund tapaðar ljósmyndir komust í leitirnar Lífið Helvítis kokkurinn: Heilög helvítis þrenna Lífið Glæsihöll Esterar í Pelsinum til sölu á 470 milljónir Lífið Emil og Ása keyptu 330 milljóna einbýli í Fossvogi Lífið Nýjasta tíska ferðalanga? Að fljúga berbakt um háloftin Lífið Sól og sæla á Götubitahátíðinni Lífið Umræða um feðraveldi og karlrembu skekur djassbransann Menning