Lífið

"Það eru vandræði í paradís“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Sjónvarpsstjarnan Nick Cannon og söngkonan Mariah Carey hafa búið í sundur síðustu mánuði. Þetta staðfestir Nick í samtali við The Insider.

„Það eru vandræði í paradís. Við höfum búið í sitthvoru húsinu í nokkra mánuði,“ segir hann.

Nick og Mariah hafa verið gift í sex ár og eiga saman tvíburana Monroe og Moroccan, þriggja ára.

Nick vildi ekki fara nánar út í hjónabandsörðugleikana.

„Ég einblíni aðallega á börnin mín,“ segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×