Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndir: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Blikar í stuði gegn Víkingum Kolbeinn Tumi Daðason á Kópavogsvelli skrifar 21. september 2014 00:01 Vísir/Valli
Árni Vilhjálmsson skoraði þrennu þegar Blikar skelltu vængbrotnum Víkingum í rigningu og roki á Kópavogsvelli í 20. umferð Pepsi-deildar karla. Blikar voru mun sterkari aðilinn frá upphafi til enda og verðskulduðu sigurinn. Strax í upphafi leiks var ljóst í hvað stefndi. Blikar sóttu af krafti undan vindi og eftir tuttugu mínútur hafði Árni Vilhjálmsson komið heimamönnum í 2-0. Fyrra markið var af glæsilegri gerðinni, negla upp í þaknetið einn gegn Ingvari Kale, en hið síðara af stuttu færi eftir góðan undirbúning Ellerts Hreinssonar. Blikar réðu gangi leiksins fullkomlega og Víkingar, sem léku án þriggja lykilmanna, áttu engin svör. Skotinn Henry Monaghan fékk að líta rauða spjaldið undir lok fyrri hálfleiks fyrir háskalega tæklingu og þar með var leiknum svo gott sem lokið. Blikar hefðu getað leitt með fimm mörkum í hálfleik en forystan aðeins tvö mörk er gengið var til búningsherbergja. Síðari hálfleikurinn var jafnari þótt Víkingar væru manni færri. Ekkert benti þó til annars en öruggs sigurs Blika þegar brotið var á Viktori Erni Jónssyni innan teigs. Ívar Örn Jónsson skoraði af öryggi úr spyrnunni og gaf gestunum von. Glæsimark Árna slökkti þær vonir á 82. mínútu með frábæru vinstri fótarskoti áður en Ellert Hreinsson innsiglaði sigurinn. Blikar léku mögulega sinn besta leik í sumar og hljóta að svekkja sig á því hvar þessi spilamennska hefur verið til þessa. Jafntefliskóngarnir voru í frábærum gír og hefðu getað skorað mun fleiri mörk. Víkingar eru áfram í bílstjórasætinu hvað Evrópusæti varðar. Nú er hins vegar forystan á Valsmenn í 5. sæti aðeins tvö stig eftir sigur Hlíðarendapilta á Þór. Blikar eru úr fallhættu eftir sigurinn í dag. Framarar gætu náð þeim að stigum en 17 markamunur gerir það að verkum að Blikar verða í efstu deild að ári svo framarlega sem svín taki ekki upp á því að fljúga. Gummi Ben: Skrautlegar tæklingar fylgja haustinuGuðmudur Benediktsson.Vísir/Stefán„Við byrjuðum af gríðarlegum krafti og gerðum út um leikinn í fyrri hálfleik með frábærri spilamennsku á köflum. Við erum hæstánægðir,“ sagði Guðmundur Benediktsson, kampakátur þjálfari Blika, í leikslok. Hann vildi ekki viðurkenna að farið hefði um sig þegar Víkingar minnkuðu muninn í eitt mark stundarfjórðungi fyrir leikslok. Blikar hafa sett Íslandsmet í jafnteflum í sumar og örugglega einhverjir sem áttu von á að hið sama yrði uppi á teningnum. „Nei, ég hafði gríðarlega góða tilfinningu. Fannst við reyndar á tímabili í síðari hálfleik flækja hlutina. Einfaldleikinn er bestur og við gerðum hið einfalda mjög vel í fyrri hálfleik. Það er mannlegt eðli að reyna að gera erfiðari hluti og flækja hlutina tveimur mörkum yfir og manni fleiri.“ Hans menn hefði vaknað við að fá á sig markið og var Guðmundur ánægður hvernig hans menn „stigu á bensíngjöfina“ og kláruðu leikinn. Aðspurður um rauða spjaldið sem Henry Monaghan, leikmaður Víkings, fékk undir lok fyrri hálfleiks sagði Guðmundur: „Hann fór í tæklingu á mínum manni og dómarinn virðist hafa metið það þannig að hann hafi farið með takkana á undan. Þetta gerist nokkrum sinnum þegar fer að hausta. Ekkert auðvelt að dæma í þeim aðstæðum.“ Óli Þórðar: Blikar voru miklu betri„Það er lítið að segja um frammistöðu okkar. Það er meira að segja um frammistöðu Blika. Þeir voru miklu betri en við og við mættum ekki klárir,“ sagði Ólafur Þórðarson, þjálfari Víkinga. Gestirnir söknuðu Arons Elís Þrándarsonar, Pape Faye og Alan Lowing í dag og var það greinilegt. Þjálfarinn var aðeins með sex varamenn og einn þeirra var Milos Milojevic, aðstoðarþjálfari Víkinga. „Við vissum að við værum með þunnan hóp en engu að síður vill maður sjá þá sem maður stillir upp í byrjunarliðinu leggja meira á sig en þeir gerðu í dag.“ Aðspurður hvort hans menn hefðu ekki verið með hausinn kláran í baráttuna í rigningunni og rokinu sagði Ólafur: „Nei, mér sýndist ekki.“ Henry Monaghan, miðjumaður Víkinga, var rekinn af velli fyrir grófa tæklingu undir lok fyrri hálfleiks. Ólafur var ósáttur við dóminn og taldi Skotann aðeins hafa farið með annan fótinn í tæklinguna. Sá dómur hefði þó litlu skipt í heildarmyndinni. Víkingar hafa tveggja stiga forskot á Val í baráttunni um Evrópusæti þegar tvær umferðir eru eftir. Ólafur viðurkenndi að hann hefði áhyggjur fyrir leikina sem framundan væru. Hann hefði alltaf áhyggjur. Árni Vill: Ég á einn gulllitaðan skó fyrirÁrni Vilhjálmsson.„Ég er sáttur með liðið og sigurinn. Mörkin eru fín líka þar sem maður er framherji,“ sagði Árni Vilhjálmsson, maður leiksins. Árni skoraði þrjú mörk og þakkaði hann meðal annars skónum sem hann klæddist. „Ég verð að gefa Viktori Unnari (Illugasyni) vini mínum það að hann lánaði mér þessa skó. Fyrst með U19 landsliðinu þegar ég setti átta mörk í tíu leikjum og svo dró ég þá fram í sumar fyrir þennan leik og setti þrjú. Þeir gefa mörk þessir skór,“ sagði Árni léttur. Árni er kominn með tíu mörk í sumar og í kapphlaupi við Jonathan Glenn og Gary Martin um markakóngstitilinn. Hann segir það ekki markmið að verða markakóngur og næla sér í gulllitaðan skó. „Alls ekki. Ég var að spila í gulllituðum skóm í dag svo ég á einn svoleiðis. Ég get ekki farið að hugsa út í það. Að vinna leikina er mjög gott. Að skora eitt eða tvö er gaman líka. Ég er sáttur ef ég næ að gera eitthvað fyrir liðið.“ Aðspurður hvort hann sé farinn að hugsa um að spila fyrir utan landsteinana líkt og svo margir fyrrverandi Blikar gera segir Árni: „Nei, það eru tveir leikir eftir. Svo bara sjáum við til hvað gerist.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Lífvörðurinn bannaður: „Leyfið mér að hjálpa Messi“ Fótbolti „Var meira fyrir að borða nutella úr krukkunni og spila tölvuleiki“ Íslenski boltinn Stúkan fær liðsstyrk í þremur kanónum Íslenski boltinn Besta auglýsing Fram: Rúnar kann öll vafasömu trixin Íslenski boltinn „Ég veit bara að þetta er mjög vont“ Fótbolti Tekjur Wrexham í hæstu hæðum Fótbolti Tárin streymdu hjá gömlu United-hetjunni Fótbolti Besta-spáin 2025: Vindur í Skagaseglin Íslenski boltinn Þórey aftur inn í landsliðið: „Þurftum bara aðeins að hreinsa andrúmsloftið“ Handbolti 570 milljóna uppsafnað tap hjá Everton Fótbolti Fleiri fréttir Stúkan fær liðsstyrk í þremur kanónum Besta auglýsing Fram: Rúnar kann öll vafasömu trixin „Var meira fyrir að borða nutella úr krukkunni og spila tölvuleiki“ „Stærsta í þessu er ef Rúnar Már nær að spila meira“ Besta-spáin 2025: Vindur í Skagaseglin Heimsóttu Hásteinsvöll: „Það eru ekkert allir sáttir við þetta“ Vel vopnaðir tökumenn: „Djöfull er þetta góður klútur“ „Maður er pínu hræddur fyrir þeirra hönd“ Besta-spáin 2025: Að finna sér nýjan samastað í tilverunni „Gerðum gott úr þessu“ Uppgjörið: Breiðablik - KA 3-1 | Breiðablik er meistari meistaranna Herra Víkingur kvaddur: „Rosalega gott tækifæri til að hætta“ Skelfileg meiðsli Stefáns Árna: „Fóturinn var í mjög ljótri stöðu“ Frumraun Gylfa í beinni í kvöld „Mér finnst þeir geta farið í báðar áttir“ Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Sænska stórveldið keypti Ísabellu Söru Grindvíkingar sækja um í hamfarasjóð UEFA Heimi finnst aldursumræðan algjörlega galin Ný treyja KR kynnt með pompi og prakt „Þetta er veikara lið“ Besta-spáin 2025: Leiðin orðin grýttari „Mjög krefjandi tímabil framundan“ „Lærir með hverju árinu hvað maður á að hlusta á og hvað ekki“ Besta-spáin 2025: Ætla að brosa aftur í mótslok Aftur hefur KR leik í Laugardalnum Nýi markvörður KA kom snemma inn af bekknum í fyrsta leik Ísabella Sara sögð á leið til Rosengård Besta auglýsing Aftureldingar: „Þetta er enginn helvítis Pizzabær“ „Veturinn eins og best verður á kosið“ Sjá meira