Lífið

Eiginkonan hefur ítrekað reynt að kúga út úr honum fé

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Mark Vincent Kaplan, lögfræðingur leikarans Stephens Collins, hefur sent yfirlýsingu til fréttasíðunnar TMZ varðandi málefni skjólstæðings síns.

TMZ birti upptöku í gær þar sem Stephen heyrist játa fyrir eiginkonu sinni, Faye Grant, og fjölskylduráðgjafa að hann hafi misnotað ungar stúlkur kynferðislega um árabil. Lögfræðingur hans segir Faye hafa oft og mörgum sinnum reynt að kúga fé út úr leikaranum.

„Faye hefur oft hótað því að senda fjölmiðlum þessa upptöku ef Stephen samþykkti ekki að greiða henni mörgum milljónum dollurum meira en hún átti að fá samkvæmt lögum þann tíma sem hann hefur verið skjólstæðingur minn,“ segir Mark.

„Þegar ekki var orðið við þessum kröfum reyndi Faye, án árangurs, að selja upptökuna á ýmsa vegu til mismunandi aðila. Nú virðist sem hún hafi loksins fundið kaupanda,“ segir hann enn fremur og bætir við að hann geti ekki tjáð sig um það sem heyrist á upptökunni þar sem málið sé í rannsókn.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.