Íslenski boltinn

Ágúst áfram í Grafarvogi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Pjetur
Ágúst Þór Gylfason, þjálfari Fjölnis, verður áfram hjá félaginu enda með gildandi samning í eitt ár til viðbótar.

Þetta staðfesti Kristján Einarsson, formaður knattspyrnudeildar Fjölnis, í samtali við Fótbolti.net í dag.

„Við framlengdum samninginn um tvö ár í fyrra og það hefur ekkert annað verið rætt,“ sagði Kristján og bætti því við að það væri markmiðið að styrkja leikmannahóp félagsins.

Fjölnir vann ÍBV í lokaumferð Pepsi-deildar karla um helgina og bjargaði sér þar með frá falli. Liðið endaði í níunda sæti Pepsi-deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×