Íslenski boltinn

Unglingalandsliðsmarkvörður í markinu hjá Fram á morgun

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Denis hefur varið mark Fram að undanförnu.
Denis hefur varið mark Fram að undanförnu. Vísir/Stefán
Denis Cardaklija mun ekki verja mark Fram í leiknum gegn Fylki á morgun vegna höfuðhöggsins sem hann fékk í 4-0 tapinu gegn Stjörnunni í síðustu umferð.

Hinn 17 ára gamli Hörður Fannar Björgvinsson mun því að öllum líkindum standa í rammanum í þessum mikilvæga leik, en hann hefur komið við sögu í fjórum deildarleikjum hjá Fram á tímabilinu.

Fram er í erfiðri stöðu fyrir lokaumferðina, en liðið er í 11. og næstneðsta sæti Pepsi-deildarinnar með 18 stig, tveimur minna en Fjölni og mun verri markatölu en Grafarvogsliðið.

Fram þarf að vinna leikinn gegn Fylki og treysta á að ÍBV vinni Fjölni til að halda sæti sínu í deild þeirra bestu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×