Lífið

Fimmta barnið á leiðinni hjá Jude Law

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Jude horfir til framtíðar.
Jude horfir til framtíðar. vísir/getty
Leikarinn Jude Law á von á barni með fyrrverandi kærustu sinni, Catherine Harding, samkvæmt heimildum tímaritsins Us Weekly.

„Ég get staðfest að Jude Law og Catherine Harding eiga von á barni saman í vor. Þó þau séu ekki lengur í ástarsambandi ætla þau að helga sig uppeldi barnsins saman af fullum krafti,“ segir blaðafulltrúi Judes og bætir við að leikarinn ætli ekki að tjá sig meira um meðgönguna að þessu sinni.

Þetta verður fyrsta barn Judes og Catherine saman en fyrir á leikarinn soninn Rafferty, sautján ára, soninn Rudy, ellefu ára og dótturina Iris, þrettán ára með fyrrverandi eiginkonu sinni, Sadie Frost, og dótturina Sophiu með fyrrverandi kærustu sinni, Samantha Burke.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×