Lífið

Jón Óttar og Yoko Ono náðu vel saman

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
„Við hjónin vorum djúpt snortin af samfylgdinni við hana,“ segir framleiðandinn Margret Hrafnsdóttir. Hún og eiginmaður hennar, Jón Óttar Ragnarsson, framleiða sjónvarpsþáttinn Dulda Ísland sem verður á dagskrá Stöðvar 2 í vetur og í vikunni tóku þau upp efni fyrir þáttinn með sjálfri Yoko Ono.

„Þau Jón Óttar náðu vel saman og hafði hún orð á því enda ánægð með spjallið við hann. Við erum skýjum ofar og þakklát fyrir þennan heiður að hafa hana í Dulda Ísland,“ bætir Margret við.

Þau hjónin voru einnig viðstödd þegar friðarsúlan var tendruð í Viðey í gærkvöldi.

„Þetta var mögnuð stund og töfrum hlaðin. Einlæg barátta Yoko Ono fyrir heimsfriði og betri heimi er ótrúlega sönn og mikill innblástur. Þvílík kona! Við Íslendingar stöndum í mikilli þakkarskuld við hana. Þúsundir munu leggja leið sína 9. október í Viðey ár hvert um ókomin ár.“

Eins og fyrr segir verður Dulda Ísland sýnt í vetur en í þáttunum ferðast Jón Óttar um landið á staði sem eru ekki hefðbundnir ferðamannastaðir og vekur athygli Íslendinga og útlendinga á þessum perlum um land allt.

Á þessum slóðum er farið yfir söguna og fær Jón Óttar sérfræðinga með sér í lið. Í för með Jóni Óttari slást ferðafélagar eins og Eiður Smári, Erpur Eyvindarson, Magnús Scheving, Eivör, Þorvaldur Davíð og fleiri.


Tengdar fréttir

"Okkur var spáð þremur mánuðum saman“

Kvikmyndaframleiðandinn Margret Hrafnsdóttir flutti til Los Angeles með eiginmanni sínum, Jóni Óttari Ragnarssyni, snemma á tíunda áratug síðustu aldar. Nú, rúmum tveimur áratugum seinna, eru þau hjónin orðin virt í kvikmyndabransanum þar ytra og nóg í pípunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×