Lífið

Óvenjuleg sjón: Saman á rauða dreglinum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kærustuparið.
Kærustuparið. vísir/getty
Turtildúfurnar Irina Shayk og Cristiano Ronaldo mættu saman á Liga de Futbol Profesional-verðlaunahátíðina sem haldin var í gærkvöldi í Madrid á Spáni.

Fyrirsætan og knattspyrnukappinn mæta afar sjaldan saman á rauða dregilinn en Ronaldo var sigursæll þetta kvöld og hlaut verðlaun sem besti framherji, fyrir besta markið og var kosinn besti leikmaður í spænsku deildinni.

Irina og Ronaldo hafa verið saman síðan í maí árið 2010 en þau ku hafa kynnst við tökur á auglýsingaherferð fyrir Armani Exchange.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×