Lífið

Jennifer Lawrence og Chris Martin hætt saman

Bjarki Ármannsson skrifar
Skötuhjúin hófu að rugla saman reitum í júní síðastliðnum.
Skötuhjúin hófu að rugla saman reitum í júní síðastliðnum. Vísir/Getty/Getty
Jennifer Lawrence leikkona og Chris Martin, söngvari hljómsveitarinnar Coldplay, hafa slitið sambandi sínu. Frá þessu greinir fréttaveitan E!

Skötuhjúin hófu að rugla saman reitum í júní síðastliðnum stuttu eftir að Lawrence hætti með Nicolas Hoult, sem lék með henni í kvikmyndunum um X-Fólkið. Martin sleit aftur á móti tíu ára sambúð sinni með leikkonunni Gwyneth Palthrow í mars. 

Lawrence og Martin fóru nokkuð leynt með samband sitt og þau voru til að mynda aðeins mynduð einu sinni saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×