Lífið

Robbie Williams dansar og syngur á fæðingardeildinni

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Skjáskot úr myndbandinu.
Skjáskot úr myndbandinu.
Tónlistarmaðurinn Robbie Williams er uppá fæðingardeild í þessum töluðu orðum en hann á von á sínu öðru barni með eiginkonu sinni Ayda Field.

Robbie birti myndband á Facebook-síðu sinni fyrir stuttu þar sem hann sést dansa og syngja smellinn sinn Candy fyrir eiginkonuna. Eins og sést í myndbandinu er henni ekki skemmt.

Það stendur heldur ekki á athugasemdunum fyrir neðan myndbandið.

„Þú ert heppinn að hún kýldi þig ekki!!“ skrifar einn aðdáandi hans og annar bætir við: „Ég hefði drepið þig.“

Robbie og Ayda eiga fyrir dótturina Theodora Rose sem kom í heiminn 18. september árið 2012.

ATH: Smella þarf á Facebook-linkinn á efsta myndbandinu til að sjá það á FB-síðu Robbie.

Robbie Williams syngur lag úr Frozen fyrir sína heittelskuðu Field dansar fyrir Robbie Williams á fæðingardeildinni





Fleiri fréttir

Sjá meira


×