Lífið

Tekur myndir af hálfnöktum karlmönnum til að komast yfir ástarsorg

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ljósmyndarinn Stevie Raelynn hefur afhjúpað ljósmyndaseríu sem hún kallar I did it all for you.

Í seríunni eru 29 myndir af hálfnöktum og berskjölduðum karlmönnum en hugmyndina fékk Stevie þegar hún gekk í gegnum ástarsorg.

„Myndirnar eru 29 útgáfur af þeim manni sem ég gat ekki gleymt,“ skrifar hún á heimasíðu sína.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar af myndunum í seríunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×