Lífið

Beyoncé hannar íþróttafatnað

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Beyoncé.
Beyoncé. vísir/getty
Söngkonan Beyoncé og verslanakeðjan Topshop ætla að taka höndum saman í nýju fyrirtæki sem heitir Parkwood Topshop Athletic Ltd.

Beyoncé hannar íþróttaföt undir merkjum fyrirtækisins sem koma í verslanir næsta haust samkvæmt heimildum WWD.

Margar stjörnur hafa unnið með Topshop en þó ekki á þennan hátt og er þetta í fyrsta sinn sem tískurisinn býr til nýtt fyrirtæki með þeim sem það vinnur með. Þýðir þetta að tekjur af sölu fatnaðarins renna jafnt til beggja aðila.

Í línu Beyoncé verður til að mynda jóga- og dansfatnaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×