Lífið

Hótelgestir geta gist í Harry Potter-herbergjum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hótelið The Georgian House hefur breytt tveimur herbergjum á hótelinu í anda Harry Potter-myndanna. Samkvæmt heimasíðu hótelsins eru fjögur rúm í herbergjunum, flöskur með galdraseyði og öðrum munum sem hæfa göldróttu fólki.

Gestir á hótelinu geta keypt svokallaðan Harry Potter-pakka en innifalið í honum er gisting í eina nótt fyrir tvær manneskjur, „Muggle“-morgunverður og ferð með Harry Potter-strætó í myndver Warner Brothers þar sem gestir fá að vita allt um gerð myndanna. Búningar eru hins vegar ekki innifaldir. 

„Herbergin okkar hafa verið gerð til að færa ykkur inn í heim Harry Potter!“ stendur á heimasíðu hótelsins. 

„Þau eru afar frábrugðin öðrum herbergjum sem þið hafið gist í en þau eru mjög falleg á sinn hátt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×