Lífið

Vill fá alvöru nöfn strippara til að biðja fyrir þeim

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
David Van Vleet, íbúi í Pierce County í Washington, sótti um það á dögunum að hann fengi fæðingarnöfn sjötíu nektardansara og nektarstaðaeiganda í heimabæ sínum. 

„Mig langar að biðja fyrir þessum dönsurum með réttu nafni,“ segir David í samtali við fréttaveituna KIRO.

„Ég var að reyna að gera eitthvað gott fyrir almenning,“ bætir hann við.

Dómarinn Ronald Leighton setti bráðabirgðarlögbann á að David fengi þessar upplýsingar en málið verður tekið aftur fyrir þann 15. desember næstkomandi.

David var ekki ánægður með þessa niðurstöðu.

„Hann í raun þaggaði niður sjö milljónir manna í Washington-fylki til að vernda svokallað einkalíf sjötíu einstaklinga sem dansa á sviði naktir.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×