Lífið

Næturklúbbur á kafi í vatni - Myndband

Samúel Karl Ólason skrifar
Skjáskot
Auglýsing sem Skol brugghúsið í Brasilíu gerði fyrir nýjan bjór fyrirtækisins hefur vakið mikla athygli. Margar bjórauglýsingar gerast á skemmtistöðum, sem þessi auglýsing gerir einnig. Þessi skemmtistaður er þó á kafi í vatni.

Við tökurnar voru sérstakar vatnsheldar myndavélar og ljós notuð svo hægt væri að taka auglýsinguna upp í stórum vatnstanki. Kafarar voru staðsettir víða um settið svo þeir gætu gefið leikurunum loft á milli takna, sem voru allar frekar stuttar.

Niðurstaðan er einstaklega flott auglýsing.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×