Leikjavísir

Besti Skylanders-leikurinn til þessa

Tinni Sveinsson skrifar
Erkióvinurinn Kaos snýst óvænt í lið með góðu öflunum en er þó ekki allur þar sem hann er séður frekar en fyrri daginn.
Erkióvinurinn Kaos snýst óvænt í lið með góðu öflunum en er þó ekki allur þar sem hann er séður frekar en fyrri daginn.
Skylanders: Trap Team

Ævintýraleikur

Spilaður á Wii U



Skylanders er meðal best heppnuðu tölvuleikjaseríum síðustu ára. Fyrsti leikurinn kom út árið 2011 og var fyrsti tölvuleikurinn í sögunni sem kynnti til sögunnar tækni sem lætur raunveruleg leikföng lifna við í tölvuleiknum.

Með hverjum leik eru gefin út um fimmtíu mismunandi leikföng, svokallaðir Skylander-kallar, sem ungir spilarar keppast við að safna. Þetta hefur leitt til þess að í lok síðasta árs höfðu selst yfir 175 milljónir leikföng tengd Skylanders.

Serían komst þar með á topp 20 listann yfir gróðahæstu tölvuleikjaseríur allra tíma. Það skyldi því engan undra að aðrir, þar á meðal Disney, skyldu líkja eftir formúlunni með svipuðum leikjum.

Trap Team er fjórði Skylanders-leikurinn og sá besti til þessa. Sem fyrr er hugmyndaauðgi í persónusköpun aðalsmerkið og eru fjölmargar skemmtilegar persónur kynntar til sögunnar, nánar tiltekið um 60 Skylander-kallar sem hægt er að safna og um 40 óvinir. 

Eins og sjá má er persónugalleríið í Skylanders: Trap Team ekkert smáræði.
Fyrirtækið Activision framleiðir leikina og hefur með hverjum leik kynnt nýjung til sögunnar. Að þessu sinni er hún mjög snjöll, gildrur sem komið er fyrir á hliðinu sem tengt er við tölvuna til að skipta um Skylander-kalla.

Þetta gerir það að verkum að í hvert sinn sem óvinur er sigraður er hægt að fanga hann í gildru og spila hann seinna í leiknum. Þetta þykir ungum spilurum vitanlega mjög spennandi, enda er ekki minna lagt í persónusköpun óvina en þeirra góðu.

Þetta reynist líka vera bráðfyndið þar sem lítill hátalari er á hliðinu þar sem óvinirnir gjamma og segja brandara í takt við það sem er að gerast í leiknum. Á mínu heimili slógu grjótharði þungarokksúlfurinn Wolfgang og kvartandi gelgjan Dreamcatcher hvað mest í gegn.





Tveir Skylander-kallar og tvær gildrur fylgja með startpakkanum. Best er að festa einnig kaup á hinum sex gildrunum sem til eru til að njóta leiksins. Það fer síðan eftir hverjum og einum hvort eða hversu hratt söfnun Skylander-kallanna fer fram.

Eins og þeir foreldrar sem til þekkja vita geta töluverð útgjöld fylgt leikjunum. Það er þó hægt að stilla þeim í hóf en það verða eflaust einhverjir Skylander-kallar í jólapökkunum hjá söfnurunum.

Leikurinn sjálfur er litríkur og fullur af fjöri. Ég spilaði hann með tíu ára syni mínum og skemmtum við okkur konunglega. Hann er Skylander-fræðingur mikill og er sammála því að þetta sé besti leikurinn til þessa.

Sögusviðið er sem fyrr Skýjalönd þar sem flakkað er á milli staða og jafnvel í tíma til að vinna bug á óvinum og koma í veg fyrir ráðabrugg þeirra. Leikurinn býður kannski ekki upp á miklar framfarir í spilun frá fyrri leikjum í seríunni. Er í raun ósköp hefðbundinn platform-leikur. Grafíkin er aftur á móti skemmtileg og það eru persónurnar sem eiga sviðið, bæði þær góðu og vondu.

Ef leitað er að skemmtilegum og hugmyndaríkum fjölskylduleik þá mæli ég hiklaust með Skylanders Trap Team.








×