Lífið

James Blunt viðurkennir að You're Beautiful sé pirrandi

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
James Blunt vill hrista af sér slyðruorðið.
James Blunt vill hrista af sér slyðruorðið.
Söngvarinn James Blunt hefur viðurkennt að hans þekktasta lag, You're Beautiful, sé pirrandi. Hann lét þessi orð falla í viðtali við Hello Magazine

„Laginu var troðið ofan í kokið á fólki og varð pirrandi," viðurkennir hann og bætir við að fólk hafi byrjað að tengja hann sem listamann við lagið og ekki gefið öðrum lögum hans nægan gaum.

Hann segir að markaðssetningin á sér sem listamanni hafi verið beint að konum á ákveðnum aldri og hann hafi tapað á því þegar litið er á stóru myndina. „Markaðssetningin gekk líka út á að sýna mig sem mjög alvarlegan mann, mjög einlægan mann. En eins og vinir mínir vita er það mjög fjarri sannleiknum. Ég á nokkur sorgleg og ofur-tilfinningarík lög, sem ég er þekktur fyrir. En ég held að ég hafi náð að hrista það orðspor af mér. Ég held að fólk sé farið að átta sig á að ég tek sjáflan mig alls ekki alvarlega."

Að sjálfsögðu er lagið svo hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×