Lífið

„Ertu með allt niðrum þig?!“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Útvarpsþátturinn FM95BLÖ á útvarpsstöðinni FM957 verður með öðruvísi sniði á morgun en þá ætlar Egill „Gillz“ Einarsson, sem gengur einnig undir listamannsnafninu DJ Muscleboy, að stjórna tónlistinni í þættinum.

Dagskrárstjóri FM957, Rikki G, ákvað að reyna að plata Egil með því að segja honum að hann væri hættur við að leyfa honum að stjórna tónlistinni í þættinum eins og heyra má í meðfylgjandi hljóðbroti.

Egill tók vægast sagt ekki vel í þessa uppástungu Rikka.

„Ertu með allt niðrum þig?!“ spurði Egill Rikka og varð síðan frekar orðljótur.

„Þetta er ekki flókið. Farðu úr sokknum þínum , dýfðu honum ofan í klósettið og troddu honum upp í munninn á þér.“

Hrekk Rikka G má hlusta á hér fyrir ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×