Lífið

Höfrungur fótóbombar brúðhjón

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Alexis og Steve Espey gengu í það heilaga fyrir stuttu og ákváðu að gera það í skemmtigarðinum Marineland Dolphin Adventure í St. Augustine í Flórída í Bandaríkjunum.

Þau fengu ljósmyndarana Sarah og Ben McLachlan til að festa herlegheitin á filmu en þegar parið kysstist sínum fyrsta kossi sem brúðhjón eftir athöfnina gerðist svolítið skemmtilegt - höfrungur í skemmtigarðinum stökk hátt í loft upp og varð mikilvægur partur af brúðkaupsmyndinni.

„Allir voru að klappa fyrir brúðhjónunum en þegar höfrungurinn hoppaði upp trylltust allir eins og þetta væri atriði úr bíómynd,“ segja ljósmyndararnir við Caters News

„Þetta var mjög sérstök stund og fullkomin tímasetning fyrir þeirra fyrsta koss eftir athöfnina.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×