Lífið

Rachel og Hayden eignuðust stúlku

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Leikaraparið Rachel Bilson og Hayden Christensen eru búin að eignast stúlku sem skírð hefur verið Briar Rose.

Samkvæmt síðunni JustJared er nafnið vísan í ævintýrið Þyrnirós en Áróra prinsessa gengur líka undir nafninu Briar Rose í ævintýrinu. Ekki er ljóst hvenær hnátan kom í heiminn.

Rachel og Hayden kynntust árið 2007 á setti kvikmyndarinnar Jumper. Þau trúlofuðu sig árið 2008 en hættu saman um mitt ár 2010. Nokkrum mánuðum síðar byrjuðu þau aftur saman og í maí árið 2014 fréttist af því að þau ættu von á sínu fyrsta barni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×