Heilsa

Losti

sigga dögg skrifar
Losti virðist eiga sér rætur djúpt inni í heilanum.
Losti virðist eiga sér rætur djúpt inni í heilanum. Mynd/Getty
Losti er talin eina af höfuðsyndunum samkvæmt kristinni trú.

 

Hann er talinn hafa orðið mörgum að falli og skýra af hverju fólk heldur framhjá í samböndum (oft er það þó flóknara en svo, en stundum alls ekki.)

 

Sumir rugla saman losta og ást en hægt er að aðskilja um hvort ræði útfrá því hvort tilfinningar séu eingöngu kynferðislegar eða risti dýpra.

 

Þessi heimildarmynd fer í gegnum ýmsar tilraunir til að sýna hvernig losti virkjar þankaganginn okkar og hegðun. Niðurstöðurnar koma oftar en ekki mjög á óvart.

 

Þó ber að taka fram að rannsóknirnar virðast flestar ganga útfrá gagnkynhneigðu fólki og byggir á staðalmyndum hvað þyki fallegt og kynæsandi.








×