Lífið

Opinberaði trúlofunina í smáauglýsingunum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Leikarinn Benedict Cumberbatch tilkynnti um trúlofun sína og Sophie Hunter í breska dagblaðinu The Times í dag.

Benedict og Sophie hafa verið saman um þónokkurt skeið en sáust fyrsta saman opinberlega í júní á þessu ári.

Óvenjulegt er nú til dags að fólk tilkynni um trúlofun í dagblöðum í Bretlandi en það var venjan hér á árum áður.

Margir Twitter-notendur voru afar ánægðir með Benedict að fara þessa gamaldags leið í að opinbera hjúskaparstöðu sína. Aðrir voru frekar vonsviknir að hann væri genginn út, þó sérstaklega konur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×