Lífið

Justin Timberlake og Jessica Biel eiga von á barni

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Tónlistarmaðurinn Justin Timberlake og leikkonan Jessica Biel eiga von á sínu fyrsta barni samkvæmt heimildum tímaritsins Us Weekly.

„Núna eru þau að njóta þessara frétta. Þau vilja bara hamingjusamt barn,“ segir heimildarmaður tímaritsins. 

Jessica og Justin voru í eins konar haltu mér slepptu mér sambandi í fimm ár áður en þau trúlofuðu sig í janúar árið 2012. Í október sama ár gengu þau svo í það heilaga.

Jessica og Justin hafa haft í nægu að snúast síðasta ár sem þýðir vonandi að þau geti tekið sér frí þegar barnið kemur. Eins og Íslendingar ættu að vita hefur Justin Timberlake ferðast um heiminn með tónleika sína en Jessica hefur verið dugleg að fara með ástmanni sínum á tónleikaferðalag. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×