Lífið

Harvard býður uppá fyrirlestur um endaþarmsmök

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Harvard-háskóli býður uppá fyrirlesturinn What What in the Butt: Anal Sex 101 í vikunni sem er liður í hinni árlegu kynlífsviku sem haldin er í skólanum.

Fyrirlesarar eru frá kynlífsversluninni Good Vibrations en fyrirlesturinn fjallar eingöngu um endaþarmsmök. Er tilgangurinn að hrekja goðsagnir um endaþarmsmök og fjalla um af hverju fólk stundar endaþarmsmök og hvernig eigi að gera það svo báðir aðilar fái ánægju út úr því.

„Kynnið ykkur staðreyndir um þetta spennandi en oft misskilda form ánægju, lærið um algeng mistök sem fólk gerir og fáið svör við öllum ykkar spurningum!“stendur í lýsingu fyrir fyrirlesturinn.

Kynlífsvikan er haldin til að gefa nemendum heildrænan skilningi á kynlífi en mörgum hefur fundist sumir fyrirlestrarnir óviðeigandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×