Lífið

Þessi keppa í Celebrity Apprentice

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ian Ziering, Brandi Glanville og Gilbert Gottfried.
Ian Ziering, Brandi Glanville og Gilbert Gottfried. vísir/getty
Beverly Hills-hönkið Ian Ziering, spjallþáttastjórnandinn Geraldo Rivera, skemmtikrafturinn Gilbert Gottfried og raunveruleikastjarnan Brandi Glanville eru meðal keppenda í næstu seríu af þætti Donalds Trump, Celebrity Apprentice. 

Þetta var tilkynnt í dag í þættinum Today og mætti Donald sjálfur til að ræða um seríuna. Hann lét þau orð falla fyrir stuttu að hann hefði aldrei verið með þátttakendur í þættinum sem hötuðu hvorn annan jafn mikið og þessir og í Today sagði hann að það væri að stórum hluta satt. Kallaði hann Geraldo Rivera meðal annars illkvittinn.

Piers Morgan, sem hrósaði sigri í fyrsta Celebrity Apprentice, verður gestadómari í nýju seríunni en aðrir sigurvegarar, svo sem Bret Michaels, Arsenio Hall og Trace Adkins, koma líka fyrir. 

Aðrir þátttakendur í ár eru sjónvarpskonan Kate Gosselin, tónlistarmaðurinn Kevin Jonas, fimleikastjarnan Shawn Johnson, Deadliest Catch-stjarna Sig Hansen, leikkonan Vivica A. Fox, leikarinn Lorenzo Lamas, spjallþáttastjórnandinn Leeza Gibbons, fyrirsætan og leikkonan Kenya Moore, hafnaboltahetjan Johnny Damon, NFL-leikmaðurinn Terrell Owens, leikkonan Keshia Knight Pulliam og snjóbrettakappinn Jamie Anderson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×