Lífið

Fór frá eiginkonunni því hún var máluð eins og gömul kona

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Parið Qing Kao og Guo Chien áttu að ganga í það heilaga fyrir stuttu í borginni Shenzhen í Kína. En þegar brúðurin mætti í myndatökuna máluð eins og gömul kona varð brúðguminn vitlaust.

Brúðguminn varð afar reiður og fór frá tilvonandi eiginkonu sinni, jafnvel þó brúðurin reyndi að sannfæra hann um að aðeins væri um brandara að ræða.

Brúðhjónin rifust heiftarlega út á miðri götu sem vakti mikla athygli viðstaddra.

„Ég hélt að hann myndi hlæja og fatta að þetta væri brandari en hann var bálreiður og sagði að það væri enginn möguleiki að hann vildi mynda sig með þér ef ég væri svona útilítandi. Hann fór síðan uppí leigubíl og yfirgaf mig,“ segir brúðurin.

Margir netnotendur eru þó efins um að myndbandið sé ekta og telja líklegra að um sviðsett atriði sé að ræða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×