Lífið

Venjum og siðum hent út um gluggann

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Nemendafélag Verzlunarskóla Íslands er búið að frumsýna stiklu fyrir leikrit sitt Rómeyju og Júlíu sem frumsýnt verður þann 7. nóvember næstkomandi.

Verkið er byggt á einni frægustu ástarsögu heims, Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare. Rán Ísold Eysteinsdóttir, formaður Listafélags Verzlunarskóla Íslands segir að hún hafi strax orðið ástfangin af hugmyndinni um að setja upp verkið.

„Aftur á móti var töluvert taboo að takast á við Shakespeare og oft spruttu upp efasemdir varðandi skemmtanagildi leikritsins. (Sem er skondið þar sem Shakespeare flokkaði verkið sem gamanleikrit.),“ skrifar Rán í leikskrá fyrir verkið.

„Rómeyja og Júlía. Þegar þessi samsetning orða dundi í eyrum okkar í fyrsta skipti á hundraðasta brainstorm fundinum þá litum við hvort á annað og eins og ekkert væri sjálfsagðara varð valið augljóst. Við skyldum setja upp Rómeyju og Júlíu, frægustu ástarsögu heims í okkar eigin búning. Stríðinu milli heilahvelanna var lokið og ég er ekki frá því að það hafi verið jafntefli,“ bætir Rán við um tilurð uppsetningarinnar.

„Við fórum í raun öfuga leið að uppsetningu þessa verks enda er venja og siður að velja verkið fyrst en svo leikstjórann. Bjarni Snæbjörnsson leikstjóri bauð fram sína hjálp við að henda bæði venjunum og siðunum út um gluggann og var hann með okkur hvert skref þessa ævintýris með þýðingu Hallgríms Helgasonar að vopni. Talandi um vopn þá lagði Arnoddur Magnús Danks okkur hjálpar sverð við sviðsbardagana í sýningunni,“ skrifar Rán en mikill fiðringur er í Verzlingum fyrir frumsýningunni.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×