Lífið

LED ljósin hjálpuðu til

Samúel Karl Ólason skrifar
Skjáskot
Vísir birti í síðasta mánuði myndbandið Afterglow sem er af tveimur skíðamönnum renna niður fjallshlíðar Kanada sem þaktir voru LED ljósum. Um var að ræða auglýsingu fyrir Philips sjónvörp sem gerð var af sænska fyrirtækinu Ahlstrand & Wållgren.

Nú hefur GoPro birt myndband sem sett er saman úr upptökum GoPro véla sem skíðakapparnir voru með á höfðum og skíðum sínum. Úr verður mögulegra enn flottara myndband en Afterglow sem sýnir vel hve erfitt þetta hefur verið.

AFTERGLOW - Lightsuit Segment from Sweetgrass Productions on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×