Heilsa

Smjör er ekki bara smjör

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
visir/getty
Hvort er nú hollara, smjör eða smjörlíki og hver er munurinn? Hann er nokkuð einfaldur. Smjör er náttúruafurð og búin til úr mjólk en smjörlíkið yfirleitt búið til úr jurtaolíum og misjafnt eftir framleiðendum hversu vandaðar þær olíur eru.  

Í smjöri er mettuð fita sem lengi var talin stuðla að hjartasjúkdómum en nýlegri rannsóknir sýna flestar enga tengingu þar á milli. Í smjörlíki er hins vegar hert fita sem í dag er tölvert umdeildari.

Í þessu fróðlega myndbandi frá AsapScience  er farið mjög ítarlega yfir muninn á smjöri og smjörlíki  og áhrif þess á líkama og heilsu, á skemmtilegan hátt.








×