Lífið

Skylduáhorf kvöldsins: Hrifnæmt barn grætur yfir teiknimynd

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Teiknimyndin virðist taka afar mikið á litlu stúlkuna.
Teiknimyndin virðist taka afar mikið á litlu stúlkuna.
Myndband af ungri stúlku fer nú sem eldur í sinu um veraldarvefinn. Ástæðan er hrifnæmni stúlkunnar sem virðist vera algjör. Það er afar krúttlegt að sjá hversu mjög stúlkan lifir sig inn í teiknimyndina sem hún fylgist með á ferðalagi með foreldrum sínum. Myndin, The chipmunk adventure eða Ævintýri íkornanna, fjallar um munaðarlausan mörgæsarunga sem virðist taka verulega á litlu ljóshærðu stúlkuna sem fellir tár yfir áhorfinu.

Það er ekki ofsögum sagt að myndbandið sé með eindæmum krúttlegt en á það má horfa hér fyrir neðan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×