Lífið

Birtir ófótósjoppaðar nektarmyndir

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ljósmyndarinn Juergen Teller tók myndirnar.
Ljósmyndarinn Juergen Teller tók myndirnar.
Fyrirsætan Lara Stone prýðir eina af fjórum forsíðum tímaritsins System sem kom út fyrir stuttu.

Inni í blaðinu eru myndir af Löru þar sem hún situr fyrir ber að ofan. Myndirnar tók ljósmyndarinn Juergen Teller og er ekkert búið að eiga við þær í tölvu.

Lara er gift grínistanum David Walliams úr sjónvarpsþáttunum Little Britain en þau eignuðust saman dreng á síðasta ári.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir af Löru úr System.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×